Úrvals þjónusta við þá sem þurfa aðstoð til að geta búið heima
Sinnum þjónustar einnig sveitarfélög með stuðnings- ogstoðþjónustu fyrir einstaklinga sem þurfa á aðstoð að halda við daglegt líf vegna aldurs, fötlunar, heilsubrests eða annarra perónulegra aðstæðna.
Flest sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og utan höfuðborgarsvæðisins eru reglulegir viðskiptavinir okkar sem gera samninga við fyrirtækið til lengri eða skemmri tíma.
Sinnum var stofnað árið 2008 og er því elsta heimaþjónustu fyrirtæki landsins. Viðskiptavinir okkar eru sveitarfélög og einstaklingar sem kaupa þjónustu beint af fyrirtækinu.
Í boði er fjölþætt velferðarþjónusta til einstaklinga sem þurfa á aðstoð að halda við daglegt líf.
Þjónustan okkar er einstaklingsmiðuð, persónuleg og sveigjanleg og með það að markmiði að mæta þörfum og óskum einstaklingsins.
Við bjóðum upp á stuðning, heimilisaðstoð, þrif, næringarþjónustu, útréttingar, afþreyingu og hreyfingu.
Ef þú hefur áhuga á að fá teymisstjóra í heimsókn til þess að fara yfir þjónustuna sem við bjóðum upp eða koma til okkar á fund á skrifstofu Sinnum þá hafðu samband með því að smella á hnappinn Hafa samband hér efst á síðunni eða heyrðu í okkur, heimsóknin er án endurgjalds. Áhersla okkar er að bregðast hratt við þjónustubeiðnum.
Grunngildi Sinnum
Traust
Viðskiptavinir og starfsfólk getur treyst á þagmælsku og heiðarleika.
Fagmennska
Viðskiptavinir og samstarfsfólk getur treyst á fagmennsku. Allir eru þar jafn mikilvægir.
Eldmóður
Við erum lausnamiðuð og jákvæð gagnvart viðskiptavinum og samstarfsfólki.
Hlýleiki
Við sýnum viðskiptavinum og samstarfsfólki hlýleika með því að taka vel á móti þeim, horfa í augun á þeim og sýna þeim einlægan áhuga.
Stjórnendateymi
Sinnum
Ragnheiður Björnsdóttir
Framkvæmdastjóri
Bergþóra Ingþórsdóttir
Teymisstjóri
Karen Carlsson
Teymisstjóri
Unnur Ella Árnadóttir
Teymisstjóri
Þóra Björk Hlöðversdóttir
Mannauðs- og þjónustustjóri
Stefna & markmið
Sinnum
Stefna Sinnum er að veita einstaklingsmiðaða, persónulega og sveigjanlega þjónustu svo hægt sé að mæta þörfum einstaklingsins í því umhverfi sem hann er í. Markmið fyrirtækisins er að búa einstaklingnum og fjölskyldu hans umgjörð sem veitir aukið öryggi í eigin búsetu. Um leið hefur einstaklingurinn aukið val og/eða frelsi, og getur sjálfur verið virkari þátttakandi í samfélaginu. Í því geta falist mikil lífsgæði fyrir þjónustunotendur.
Starfsumsókn
Hjá Sinnum starfar öflugur hópur sem hefur faglega framkomu að leiðarljósi í fjölbreyttu og sveigjanlegu vinnuumhverfi. Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri og kyni.
Sendu okkur almenna umsókn.
Starfsumsókn
Við erum alltaf að leita að frábæru fólki. Sendu okkur almenna umsókn.